25. jan
Guðmundur með gull og Tómas með brons á ReykjavíkurleikunumÍþróttir - - Lestrar 322
Guðmundur Smári Gunnarssonog Tómas Gunnarsson kepptu í Bogfimi fyrir hönd Eflingar á Reykjavíkurleikunum um helgina.
Á vef Eflingar segir að óhætt sé að segja að þetta hafi verið ferð til fjár hjá þeim félögum því Guðmundur vann til gullverðlauna og Tómas til bronsverðlauna í mótinu, en þeir keppa báðir í flokki sveigboga.
Frábær árangur hjá þeim sem er svo sannarlega viðurkenning fyrir það góða starf sem er í gangi í bogfiminefnd Eflingar.
Tómas Gunnarsson t.v. og Guðmundur Smári Gunnarsson fyrir miðju.
Myndina tók Guðný Ingibjörg Grímsdóttir og á vef Eflingar er hægt að skoða fleiri.