Gott Þorrablót í höllinniAlmennt - - Lestrar 5316
Það styttist í Þorrann og að venju þjófstörtuðu kvenfélagskonur á Húsavík honum með heljarinnar Þorrablóti í Íþróttahöllinni í gærkveldi. Það voru tæplega sex hundruð manns sem tóku forskot á Þorrann og nutu þar þjóðlegs matar og góðrar skemmtunar.
Bjarni Hafþór Helgason úr Grafarbakka sá um veislustjórn og fór á kostum sem von var. Skemmtiatriði voru heimanfengin og m.a. steig hljómsveitin Hárbandið á svið of flutti nokkur lög auk þess að flytja minni karla og kvenna. Hárbandið skipa þeir frændur úr Reykjadal Sigurður Illugason frá Hamraborg og Hörður Benónýsson á Hömrum.
Þegar þorramatnum hafði verið gerð góð skil og dagskráin tæmd lék hljómsveitin Von fyrir dansi langt fram eftir nóttu og henni til fulltingis var Aðalsteinn Ísfjörð á nikkunni.
Hér að neðan birtast nokkrar myndir frá blótinu sem ljósmyndari 640.is tók.
Helga Kristinsdóttir fór fyrir Þorrablótsnefndinni.
Örvar, Hlöðver á Björgum og Jón Guðlaugs taka undir í söngnum.
Ína og Hoffa kátar á blóti.
Hárbandið sló í gegn enda vanir menn þarna á ferðinni.
Fleiri myndir frá Þorrablótinu má skoða hér