26. apr
Gott atvinnuástand á félagssvæði stéttarfélaganna í ÞingeyjarsýslumAlmennt - - Lestrar 118
Um þessar mundir er mjög gott atvinnuástand á félags-svæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum.
Í frétt á heimasíðu Framsýnar segir að mikið hafi verið um atvinnuauglýsingar enda mikil vöntun á starfsfólki í mismundandi störf.
Samkvæmt heimildum heimasíðunnar er vel undir 100 manns á atvinnuleysisbótum frá Bakkafirði að Vaðlaheiði sem eru virkilega góðar fréttir.
Vinnumálastofnun hefur ekki gefið út nýjustu tölur um atvinnuleysi en með því að fara inn á vef stofnunarinnar vmst.is er hægt að sjá hvernig atvinnuleysið hefur þróast og skiptist milli sveitarfélaga og landshluta samkvæmt upplýsingum frá þeim.