Góðverk á jólum

Sú hugmynd kviknaði hjá starfsmanni Sjóvár á Húsavík, Arnari Guðmundssyni, að starfsmenn fyrirtækisins í nafni Sjóvár myndu láta eitthvað gott af sér

Góðverk á jólum
Fréttatilkynning - - Lestrar 179

Sú hugmynd kviknaði hjá starfsmanni Sjóvár á Húsavík, Arnari Guðmundssyni, að starfsmenn fyrirtækisins í nafni Sjóvár myndu láta eitthvað gott af sér leiða nú fyrir jólin.

Ætlunin var að eyrnamerkja góðverkið börnum. Aðstaða sumra fjölskyldna í samfélaginu er þannig að þau eiga ekki von á að geta fært barni sínu jólagjöf um jólin.

Verandi starfsmaður Sjóvár sem og verkefnastjóri hjá Húsavíkurstofu tengdi Emilía Aðalsteinsdóttir hugmyndina saman í samfélagslega verkefnið, Góðverk á jólum, með Húsavíkurstofu, Sjóvá og Sparisjóð s-þingeyinga og síðast og mikilvægast íbúum svæðisins.

Í tilkynningu segir að verkefnið sé eyrnamerkt barnafjölskyldum sem þurfa að þiggja aðstoð frá Velferðarsjóði þingeyinga fyrir jólin. Í gegnum sjóðinn sér þetta samfélagslega verkefni leið til þess að aðstoða foreldra í erfiðri aðstöðu fjárhagslega til að kaupa gjöf fyrir sitt barni.

Verkefnið er því jákvætt á fleiri vegu þar sem það mun ekki aðeins gleðja börnin heldur einnig styðja við sölu Húsavíkurgjafabréfa og þar af leiðandi verslun í heimabyggð.

Svona gerir þú góðverk á jólum. 

•                    Verslaðu Húsavíkurgjafabréf í Sparisjóði s-þing. á Húsavík að verðmæti 3.000 kr.

•                    Komdu með gjafabréfið í jólakassann í Sjóvá. 

 Starfsmenn Sjóvár munu taka að sér að varðveita gjafabréfin þar til þau verða færð Velferðasjóði Þingeyinga til úthlutunar 1. desember. Sjóvá hefur riðið á vaðið og gefið verkefninu 50 skt gjafabréf að upphæð 3.000 kr hvert.

Strax hefur orðið gríðarlega góð og jákvæð viðbrögð við verkefninu sem fór í gang þann 1. Nóv og mun standa yfir út nóvember.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744