Góður andi í viðræðum PCC og Framsýnar

Fulltrúar frá PCC á Bakka og fulltrúar Framsýnar komu saman til fundar í gær til að ræða framvindu sérmála í gildandi sérkjarasamningi aðila.

Góður andi í viðræðum PCC og Framsýnar
Almennt - - Lestrar 328

Fulltrúar frá PCC á Bakka og fulltrúar Framsýnar komu saman til fundar í gær til að ræða framvindu sérmála í gildandi sérkjarasamningi aðila.

Á heimasíðu Framsýnar segir að ákveðið hafi verið að fara í vinnutímastyttingar um næstu mánaðamót sem gefur starfsmönnum aukafrí án launaskerðingar í  6 daga, eða 48 stundir á ári.

"Næstu vikurnar verða notaðar til að þróa vinnutímabreytingarnar svo þær verði klárar um næstu mánaðamót. Þá verður ráðist í að þróa bónuskerfi innan fyrirtækisins sem ætlað er að færa fyrirtækinu  og starfsmönnum ábata með betri vöru og skilvirkari störfum.

Samhliða þróun á bónuskerfi verður unnið að því að þróa hæfnirama/álag sem ætlað er að gefa starfsmönnum allt að 5% launahækkun til viðbótar umsömdum launahækkunum á hverjum tíma.

Markmið kerfisins er að hvetja starfsfólk og stjórnendur til að setja þjálfun og starfsþróun í öndvegi og vinna gegn stöðnun og einhæfni. Til viðbótar er áhugi fyrir því að þróa námskeiðahald sem gagnist starfsmönnum við dagleg störf í verksmiðjunni.

Á fundinum gær urðu einnig umræður um hvernig staðið verður að nýráðningum/endurráðningum þegar verksmiðjan fer aftur á stað. Samningsaðilar reikna með að funda nokkuð stíft á næstu vikum og mánuðum um sérmál starfsmanna.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var um 80 starfsmönnum sagt upp í sumar. Uppsagnirnar koma að fullu til framkvæmda í lok september. Þegar uppsagnirnar verða gegnar yfir má reikna með að um 50 starfsmenn verði við störf hjá fyrirtækinu.

Fullur vilji er til þess hjá stjórnendum fyrirtækisins að hefja starfsemi á ný þegar markaðsaðstæður lagast og áhrifa Covid hætta að gæta". Segir í fréttinni.

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744