Góður andi í viðræðum PCC og FramsýnarAlmennt - - Lestrar 329
Fulltrúar frá PCC á Bakka og fulltrúar Framsýnar komu saman til fundar í gær til að ræða framvindu sérmála í gildandi sérkjarasamningi aðila.
Á heimasíðu Framsýnar segir að ákveðið hafi verið að fara í vinnutímastyttingar um næstu mánaðamót sem gefur starfsmönnum aukafrí án launaskerðingar í 6 daga, eða 48 stundir á ári.
"Næstu vikurnar verða notaðar til að þróa vinnutímabreytingarnar svo þær verði klárar um næstu mánaðamót. Þá verður ráðist í að þróa bónuskerfi innan fyrirtækisins sem ætlað er að færa fyrirtækinu og starfsmönnum ábata með betri vöru og skilvirkari störfum.
Samhliða þróun á bónuskerfi verður unnið að því að þróa hæfnirama/álag sem ætlað er að gefa starfsmönnum allt að 5% launahækkun til viðbótar umsömdum launahækkunum á hverjum tíma.
Markmið kerfisins er að hvetja starfsfólk og stjórnendur til að setja þjálfun og starfsþróun í öndvegi og vinna gegn stöðnun og einhæfni. Til viðbótar er áhugi fyrir því að þróa námskeiðahald sem gagnist starfsmönnum við dagleg störf í verksmiðjunni.
Á fundinum gær urðu einnig umræður um hvernig staðið verður að nýráðningum/endurráðningum þegar verksmiðjan fer aftur á stað. Samningsaðilar reikna með að funda nokkuð stíft á næstu vikum og mánuðum um sérmál starfsmanna.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var um 80 starfsmönnum sagt upp í sumar. Uppsagnirnar koma að fullu til framkvæmda í lok september. Þegar uppsagnirnar verða gegnar yfir má reikna með að um 50 starfsmenn verði við störf hjá fyrirtækinu.
Fullur vilji er til þess hjá stjórnendum fyrirtækisins að hefja starfsemi á ný þegar markaðsaðstæður lagast og áhrifa Covid hætta að gæta". Segir í fréttinni.





























































640.is á Facebook