Gleðibomba í Mývatnssveit

Það verður sannkölluð orku- og gleðibomba í Mývatnssveit helgina 28.-30. maí! Það er óhætt að segja að það sé von á fjölda fólks í sveitina fögru enda

Gleðibomba í Mývatnssveit
Aðsent efni - - Lestrar 162

Það verður sannkölluð orku- og gleðibomba í Mývatnssveit helgina 28.-30. maí! Það er óhætt að segja að það sé von á fjölda fólks í sveitina fögru enda heilmikil dagskrá framundan. 

Hraunhlaupið verður haldið í þriðja sinn á föstudagskvöldinu. Það er 9,4 km langt utanvegahlaup þar sem hlaupið er í gegnum stórbrotna náttúru Dimmuborga, yfir hraunið og Hverfellssandinn og hlaupið endar svo við Jarðböðin við Mývatn. Aðeins 150 miðar í boði og að venju seldist fljótt upp í hlaupið - enda algjörlega einstök upplifun!Laugardagurinn byrjar svo með látum þegar hjólreiðakeppnin Mývatnshringurinn er haldin í fyrsta skipti. Mývatnshringurinn er fyrsta hjólreiðakeppnin við Mývatn. Hjólað er á malbiki í kringum vatnið, alls 42,2 km. Keppnin hentar öllum sem eru áhugasamir um hjólreiðar og var keppnisfólk jafnt sem fjölskyldur og vinahópar hvatt til að skrá sig til leiks. Hjólreiðafólk var ekki lengi að taka við sér og nú þegar eru um 70 skráðir til keppni!

Þegar hjólin eru þotin af stað taka hlauparar sér stöðu við ráslínu þar sem Mývatnsmaraþonið margrómaða er næst á dagskrá. Það þarf varla að kynna fyrir landanum enda verið haldið síðan 1995. Hlaupið hefur stækkað jafnt og þétt síðustu ár og stefnir í met skráningu þetta árið. Allt í allt eru um 400 manns skráðir til leiks í íþróttaviðburði helgarinnar og alltaf einhverjir sem bætast við á lokadögunum.

Þeir sem hafa ekki hug á að keppa í hlaupum eða hjólreiðum þurfa þó ekki að vera verkefnalausir því það verður nóg annað um að vera. Dimmuborgir munu væntanlega skarta sínu fegursta í blíðunni á Laugardaginn og þar munu jólasveinarnir heilsa upp á gesti og gangandi. Einnig verður bænda- og handverksmarkaður í Kaffi Borgum og glænýr ratleikur um Dimmuborgir í boði. Á sunnudeginum verður opið hús hjá Snow Dogs í Vallholti þar sem verður hægt að kíkja á sleðahundana ótrúlegu.  


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744