Gleði og hamingja meðal félagsmanna Framsýnar með kjarasamninginn – 85% samþykktu samninginn

Í hádeginu í dag lauk atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem Framsýn á aðild að fyrir sína

Í hádeginu í dag lauk atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning Starfsgreina-sambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem Framsýn á aðild að fyrir sína félagsmenn sem starfa á almenna vinnumarkaðinum. 

Skrifað var undir samninginn 3. desember. Alls voru 1.521 félagsmenn Framsýnar á kjörskrá. Kjörsókn var 11,05%. Um 85% félagsmanna  sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni samþykktu kjarasamninginn. Nei sögðu um 14% félagsmanna og innan við 1% skiluðu auðu.

Á vef Framsýnar segir að þetta séu mikil gleðitíðindi enda endurspeglist ánægja félagsmanna í niðurstöðunni.

Nýr kjarasamningur hefur því þegar tekið gildi með gildistíma frá 1. nóvember sl.

 
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744