Gamlárshlaup Skokka

Góðar, heilbrigðar, heilsuhraustar, styrkjandi, kætandi og hressandi venjur verða að halda áfram.

Gamlárshlaup Skokka
Íþróttir - - Lestrar 364

Frá hlaupinu í fyrra.
Frá hlaupinu í fyrra.

Góðar, heilbrigðar, heilsuhraustar, styrkjandi, kætandi og hressandi venjur verða að halda áfram. 

Gamlárshlaup Skokka verður haldið á Húsavík 31. desember og hefst kl. 13:00 við Sundlaug Húsavíkur.

Boðið verðu upp á hreyfingu, göngu eða hlaup við allra hæfi, 5 km. og 10 km. hlaup/göngu með tímatöku og 3 km. hlaup/göngu án tímatöku.

Þátttaka í hlaupinu er ókeypis, útdráttarverðlaun að hlaupi loknu. Norðurþing bíður þátttakendum og öllum öðrum íbúum og gestum frítt í sund á Gamlársdag, opið í sund til kl. 15:00.   

Hlaupið er ætlað öllum sem áhuga hafa á hollri hreyfingu í góðum félagsskap. Allur aldur er velkominn. Þátttakendur eru hvattir til að nota endurskinsmerki og vera í klæðnaði og skóbúnaði í samræmi við veður og færð.

Skráning í Gamlárshlaup Skokka er á staðnum frá kl. 12:15.

Allar nánari upplýsingar veita Guðmundur Ólafsson sími 861-0182, Jón Friðrik Einarsson sími 864-1295 og Ágúst Sigurður Óskarsson sími 864-6601. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744