FS 30 ára - Hátíðarfagnaður nk. föstudagFréttatilkynning - - Lestrar 163
Framhaldsskólinn á Húsavík var stofnaður 1.apríl 1987 og settur í fyrsta sinn 15.september sama ár.
Nú eru því liðin 30 ár frá upphafi framhaldskólans. Að því tilefni verður efnt til hátíðarfagnaðar föstudaginn 15.september í húsnæði skólans að Stóragarði 10. Skólinn verður opinn almenningi þennan dag og eru allir hjartanlega velkomnir.
Dagskráin verður eftirfarandi.
Kl.13 verður opið hús með verkefnasýningu nemenda
kl.14. Hefst formleg afmælisathöfn í sal skólans
kl.15 Verður öllum boðið veitingar.
Við hvetjum alla til að mæta og samgleðjast með okkur í tilefni þessara tímamóta.
Sjáumst í FSH föstudaginn 15.september kl.13
Afmælisnefnd FSH