Frímann kokkur sýnir í Safnahúsinu á Húsavík

Í dag 9. apríl er Frímann Sveinsson, matreiðslumeistari á Húsavík sextugur.

Frímann kokkur sýnir í Safnahúsinu á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 447

Frímann kokkur sýnir í Safnahúsinu.
Frímann kokkur sýnir í Safnahúsinu.

Í dag 9. apríl er Frímann Sveinsson, matreiðslumeistari á Húsavík sextugur.

Af því tilefni opnar hann myndlistasýningu sama dag  kl:  15:00 í Safnahúsinu á Húsavík.  

Þetta er 10. einkasýning Frímanns og er myndefnið að mestu landslagsmyndir en aðrar stemningsmyndir fylgja með,  alls eru þetta 28 verk sem hann hefur málað á síðastliðnum tveim árum.

 

Frímann hefur sótt mörg námskeið í vatnslitamálun m.a. hjá Sigurði Hallmarssyni, Derek Mundell og fleirum.

Allir eru velkomnir.

Sýningin verður opin alla daga til 17. apríl frá kl: 15:00 til 18:00.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744