Framsýn skorar á Samherja að halda fiskvinnslu áfram á Húsavík

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum að skora á stjórnendur Samherja að falla frá því að hætta rekstri Reykfisks ehf. á Húsavík frá og

Húsnæði það sem Reykfiskur er í.
Húsnæði það sem Reykfiskur er í.

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum að skora á stjórnendur Samherja að falla frá því að hætta rekstri Reykfisks ehf.  á Húsavík frá og með 1. maí 2017.

Í áskoruninni segir að um sé að ræða mikilvægan vinnustað á Húsavík sem veitt hefur um 20 starfsmönnum vinnu við almenn fiskvinnslustörf. Innan fyrirtækisins er mikill mannauður.

"Í ljósi þess að kvótastaða Samherja er einstaklega góð ætti ekki að vera erfitt fyrir fyrirtækið að mæta tímabundum sveiflum í markaðs- og gengismálum með því að halda starfseminni áfram gangandi á Húsavík.

Verði niðurstaðan sú að fyrirtækið hætti endanlega starfsemi 1. maí verður það verulegur skellur fyrir starfsfólkið og samfélagið á Húsavík enda um verðmæt störf að ræða". Segir jafnframt í áskoruninni frá stjórn og trúnaðarráði Framsýnar. (framsyn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744