Framsýn - Rúmlega hálfur milljarður í atvinnuleysisbætur

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum fengu 444 félagsmenn innan Framsýnar greiddar kr. 579.133.508,- í atvinnuleysisbætur á síðasta ári.

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum fengu 444 félagsmenn innan Framsýnar greiddar kr. 579.133.508,- í atvinnuleysisbætur á síðasta ári.

Greiðslurnar koma úr Atvinnuleysistryggingasjóði.  

Þetta kemur fram á heimasíðu Framsýnar en eins og kunnugt hefur atvinnuleysið á Íslandi verið í sögulegu hámarki er tengist Covid faraldrinum.

Að meðaltali hafa um 300 til 400 einstaklingar verið án atvinnu í Þingeyjarsýslum undanfarna mánuði. Því er spáð að atvinnuleysið lagist verulega þegar líður á árið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744