Framsýn krefst riftunar

Framsýn- stéttarfélag hefur ályktað um kjaramál og ákvörðun HB Granda að greiða arðgreiðslur til hluthafa í stað þess að hækka laun starfsmanna um

Framsýn krefst riftunar
Aðsent efni - - Lestrar 313

Framsýn- stéttarfélag hefur ályktað um kjaramál og ákvörðun HB Granda að greiða arðgreiðslur til hluthafa í stað þess að hækka laun starfsmanna um umsamdar hækkanir. Ályktunin er eftirfarandi:

„Framsýn- stéttarfélag telur að Samninganefnd ASÍ eigi þegar í stað að rifta samkomulagi sem gert var við Samtök atvinnulífsins 25. febrúar um frestun á launahækkunum sem koma áttu til framkvæmda 1. mars sl.

Eins og fréttir af arðgreiðslum til eigenda HB Granda bera með sér, eru til fyrirtæki sem hafa fulla burði til að standa við gerða kjarasamninga. Á þetta hefur Framsýn margsinnis bent og lagðist því gegn frestun launahækkana. Hins vegar var góður meirihluti aðildarfélaga ASÍ með frestun. Í ljósi ákvörðunar HB Granda verður því seint trúað að verkalýðshreyfingin ætli að sitja hjá og viðurkenna þennan gjörning sem er siðlaus með öllu.

Framsýn- stéttarfélag skorar á stjórnendur HB Granda að falla frá arðgreiðslum til hluthafa og hækka þess í stað laun starfsfólks um kjarasamningsbundnar hækkanir frá og með 1. mars 2009.“

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744