Framsýn ályktar um stöðu heimilanna

Framsýn- stéttarfélag tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í

Framsýn ályktar um stöðu heimilanna
Aðsent efni - - Lestrar 328

Framsýn- stéttarfélag tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í landinu frá gjaldþroti.

 

Framsýn treystir því að ný ríkistjórn láti það verða eitt af sínum fyrstu verkum að verja stöðu heimilanna sem mörg hver eru komin í gríðarlegan greiðsluvanda.

 

Samkvæmt gögnum frá Seðlabanka Íslands voru um 42% heimila með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu um síðustu áramót. Allt bendir til þess að þessi þróun muni halda áfram nema gripið verði þegar í stað til viðeigandi ráðstafana til að forða þúsundum fjölskyldna frá miklum erfiðleikum.

 

 

Framsýn kallar eftir tafarlausum almennum leiðréttingum á gengis- og verðtryggðum lánum heimilanna. Það er skylda stjórnvalda að standa vörð um grunneiningar samfélagsins sem eru heimilin í landinu. Brettum upp ermar og hefjum uppbyggingarstarf í stað þess að tala endalaust um mikilvægi aðgerða án efnda. Við annað verður ekki unað að mati Framsýnar- stéttarfélags.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744