Framsýn - Afsláttarkjör með Niceair frá Akureyri

Framsýn hefur gengið frá samningi við flugfélagið Niceair um aflsáttarkjör fyrir sína félagsmenn.

Framsýn hefur gengið frá samningi við flugfélagið Niceair um aflsáttarkjör fyrir sína félagsmenn.

Frá þessu segir á heimasíðu Framsýnar en samningurinn gildir einnig fyrir félagsmenn Þingiðnar og STH.

Félagsmenn geta verslað tvö gjafabréf á ári. Virði gjafabréfsins er kr. 32.000,-. Fyrir gjafabréfið greiða félagsmenn kr. 20.000,-.

Fyrir tvö gjafabréf greiða félagsmenn kr. 40.000,- í stað kr. 64.000,-. Verðin taka mið af umsömdu verði og niðurgreiðslum stéttarfélaganna.

Gjafabréfin eru seld í gegnum orlofsvef stéttarfélaganna www.framsyn.is

Hægt er að nýta gjafabréfin til kaupa á flugfargjaldi og annarri bókunarþjónustu hjá Niceair í gegnum bókunarsíðu félagsins www.niceair.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744