Frá ađalfundi Hjóladeildar Völsungs

Hjóladeild Völsungs hélt sinn fyrsta ađalfund ţann 2. febrúar sl. og mćttu um 10 manns á fundinn sem haldinn var í Vallarhúsi Völsungs.

Frá ađalfundi Hjóladeildar Völsungs
Fréttatilkynning - - Lestrar 468

Hjóladeild Völsungs hélt sinn fyrsta ađalfund ţann 2. febrúar sl. og mćttu um 10 manns á fundinn sem haldinn var í Vallarhúsi Völsungs. 

Á fundinum var međal annars fjallađ um fjallahjólabrautina sem stefnt er ađ ţví ađ klára á komandi sumri.  

Brautin í fullri lengd mun vera um 5 km en nú ţegar er búiđ ađ gera 2,7 km en sá hluti liggur frá bílastćđinu á Reykjaheiđi og niđur ađ Botnsvatni, á komandi sumri er stefnt ađ ţví ađ klára ţessa braut og mun hún enda í Skrúđgarđinum á Húsavík. 

Vel hefur gengiđ ađ fjármagna ţetta verkefni og nú liggur fyrir nćgilegt fjármagn til ađ klára verkefniđ. Nokkrir myndarlegir styrkir hafa borist undanfariđ, m.a. frá Landsvirkjun, Landsbankanum og nú síđast frá Mennta- og menningarmálaráđuneytinu. 

Áđur höfđu ýmis húsvísk fyrirtćki, líkt og Trésmiđjan Rein og Höfđavélar, styrkt uppbyggingu á fyrri hluta brautarinnar. 

Mikil ánćgja var á međal fundarmanna međ stöđu mála viđ uppbyggingu á ţessari fjallahjólabraut og ţakklćti til ţeirra sem hafa styrkt ţetta verkefni.

Ljósmynd - Ađsend

Á fundinum var einnig kosin stjórn Hjóladeildar Völsungs. Hana skipa fv. Ţórólfur Jón Ingólfsson, Gunnólfur Sveinsson, Berglind Ragnarsdóttir og Ađalgeir S. Óskarsson. Edda Lóa Phillips er einnig í stjórn hún átti ekki heimangengt er fundurinn fór fram.

Ljósmynd - Ađsend

Yfirlitsmynd sem sýnir legu hjólabrautarinnar.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744