Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Skjálfanda hafinFréttatilkynning - - Lestrar 575
Þá er allt orðið klárt fyrir árlega flugeldasölu Kiwanisklúbbsins Skjálfanda sem hefst í dag, mánudaginn 28. desember kl. 13,00.
Flugeldasalan er mikilvægasta tekjuöflun styrktarsjóðs klúbbsins. Klúbburinn býr að því að miklir reynsluboltar halda utan um undirbúning og framkvæmdina. Og þrátt fyrir mikla vinnu við að gera allt klárt, gekk það vel enda eins og áður segir byggt á reynslu margra ára.
Vöruúrvalið er mikið og félagar Skjálfanda taka vel á móti fólki í flugeldasölunni á Húsavík, sem er í norðurenda Gámaþjónustu Norðurlands (við hlið Norðurvíkur). Þetta er sami staður og undanfarin ár.
Flugeldasala Skjálfanda hefst í dag , mánudaginn 28. og verður opið sem hér segir:
Mánudaginn 28. des kl. 13:00-21:00
Þriðjudaginn 29. des kl. 13:00-21:00
Miðviludaginn 30. des kl. 13:00-22:00
Fimmtudaginn 31. des kl. 10:00-15:00
-----------------------------------------------
Þriðjudaginn 05. jan kl. 15:00-18:00
Miðvikudaginn 06. jan kl. 15:00-19:00
Haldin verður flugeldakynning/-sýning við húsnæði Gámaþjónustunnar (flugeldasölunnar) þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00.