Fjólublár bekkur á Stangarbakkanum

Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka

Fjólublár bekkur á Stangarbakkanum
Almennt - - Lestrar 191

Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.

Alzheimersamtökin á Íslandi standa á bak við verkefnið og hafa fengið sveitarfélög með sér í lið.

Norðurþing hefur gengið til liðs við verkefnið og nýlega bættist einn bekkur við og er hann staðsettur á Stangarbakkanum hér á Húsavík.

Bekkjarganga

Árið 2024 var fyrsta  bekkjarganga Alzheimersamtakanna sem fram fór í Hafnarfirði. Ætlunin er að halda hana árlega og vonandi sem víðast um landið. Næsta ganga verður laugardaginn 24. maí næstkomandi.

Tengiliðir samtakanna á Húsavík eru Jóhanns Svava Sigurðardóttir og Fanney Hreinsdóttir.

Ljósmynd Hafþór


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744