Farandsýningin Solander 250: Bréf frá Ísland

Farandsýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi opnar í Safnahúsinu á Húsavík næstkomandi laugardag og er þar minnst að um þessar mundir eru 250 ár liðin

Farandsýningin Solander 250: Bréf frá Ísland
Fréttatilkynning - - Lestrar 69

Farandsýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi opnar í Safnahúsinu á Húsavík næstkomandi laugardag og er þar minnst að um þessar mundir eru 250 ár liðin frá merkum erlendum vísindaleið-angri til Íslands árið 1772.

Í þeim leiðangri var meðal annars sænski náttúrufræðingurinn Daníel SOLANDER en hann var einn af lærisveinum hins þekkta náttúruvísindamanns Carls Von Linné. Solander safnaði og skrásetti margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu þjóðar og siði. Á sýningunni túlka tíu íslenskir grafíklistamenn atburðina og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð í aldanna rás. 

Önnur sýning opnar samhliða þeirri áður nefndu eða Paradise Lost – Daniel Solander´s Legacy, sem ætlað er að minnast ferðar Solander til Kyrrahafsins árið 1769. Hér má sjá verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu og áhugaverða túlkun þeirra á þessari fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. 

Sýningarnar tvær eru settar upp í sama rými og mynda einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í ljósi ferða Solanders. Þær eru hannaðar og uppsettar í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík og hafa verið á ferð á milli listasafna landsins síðastliðið ár. Pär Ahlberger sendiherra Svíþjóðar á Íslandi mun opna sýningarnar á Húsavík. 

Aðsend mynd

Þess má einnig geta að á laugardaginn kemur opnar einnig þriðja sýningin á vegum sænska sendiráðsins, þ.e. í bókasafni Norðurþings í Safnahúsinu. Er um að ræða einskonar minningarsýningu um Einar Áskel – Einar Áskell í 50 ár!, en fimmtíu ár eru liðin frá útkomu fyrstu bókarinnar um litla snáðann með ríka ímyndunaraflið.

Til sýnis verður meðal annars úrval bókanna skemmtilegu þar sem umfjöllunarefnið er oft hversdagsleg vandamál hans sjálfs og pípureykjandi föður hans sem er bæði einstæður og heimavinnandi. Bækurnar um Einar Áskel, sem skrifaðar eru af Gunillu Bergström  voru með þeim fyrstu til að brjóta upp og ögra hugmyndum um hefðbundin kynhlutverk. Sýning sem ætluð er börnum á öllum aldri!


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744