Fara upp um deild

Strákarnir í 5. flokki Völsungs í handknattleik hafa staðið sig vel það sem af er vetri og unnið sig upp um deild.

Fara upp um deild
Íþróttir - - Lestrar 346

Strákarnir í 5. flokki Völsungs í handknattleik hafa staðið sig vel það sem af er vetri og unnið sig upp um deild.

Á dögunum tóku þeir þátt í móti sem Grótta hélt á Seltjarnarnesi og var það liður í Íslandsmóti sem flokkurinn tekur þátt í, en að þessu sinni var liðið í 4. deild.

Skemmst er frá því að segja að strákarnir unnu alla sína leiki og enduðu í efsta sæti 4. deildar. Þar með tryggðu þeir sér þátttökurétt í 3. deild á næsta móti. (volsungur.is)

5. flokkur karla

Strákarnir ásamt þjálfurum sínum, Halldóri Árna Þorgrímssyni og Óskari Páli Davíðssyni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744