Eldur, ís og mjúkur mosi

Fjölmenni var á opnun nýrrar listasýningar á gestastofunni Gíg í rjómablíđu í gćr.

Eldur, ís og mjúkur mosi
Almennt - - Lestrar 141

Fjölmenni var á opnun nýrrar listasýningar á gestastofunni Gíg í rjómablíđu í gćr.

Í frétt á heimasíđu Ţingeyjarsveitar segir ađ sýningarsalurinn sé ekkert minna en stórbrotinn enda međ útsýni yfir Mývatn.

Listasýningin samanstendur af margskonar verkum sem öll tengjast náttúru Ţingeyjarsveitar. Verkin eru gömul klassísk verk sem og ný verk eftir unga og upprennandi listamenn og er hluti af henni samstarfsverkefniđ Eldur, ís og mjúkur mosi.

„Í listinni eru allir jafnir og á sýningunni Náttúra Ţingeyjarsveitar er náttúran innblástur á einn eđa annan hátt, allt frá ţví smáa til ţess stórbrotna og yfir í ţađ hversdagslega”, sagđi Stefanía Eir Vignisdóttir, ađstođarţjóđgarđsvörđur á Norđur hálendi viđ opnun sýningarinnar. Stefanía ţakkađi öllum ţeim sem deildu verkum sínum á listasýningunni á Gíg. Sérstakar ţakkir fćrđi hún leikskólanum Yl í Reykjahlíđ. Eldri nemendur skólans túlkuđu Vindbelg hvert á sinn hátt og yngri nemendur bjuggu til steingervinga.

“Í vetur höfum viđ veriđ í samstarfsverkefni međ Reykjahlíđarskóla, Náttúruminjasafni Íslands og listakonunni Brynhildi Kristinsdóttur. Hún er búin ađ koma í nokkur skipti í skólann og vinna verkefni međ krökkunum sem fjallar um hálendiđ norđan Vatnajökuls. Ţađ verkefni er hluti af verkefni á landsvísu sem heitir Eldur, ís og mjúkur mosi en eru skólar víđsvegar í nágrenni Vatnajökulsţjóđgarđs ađ taka ţátt í ţví“, sagđi Stefanía. Geimfarar vöktu greinilega áhuga barnanna í frćđslu um hálendiđ eins og sést á listaverkunum, ţar má finna fjöldan allan af geimförum og geim bílum. Verkin verđa til sýnis á Barnamenningarhátíđ í sýningarrými Náttúruminjasafnsins á 2. hćđ í Perlunni ţann 23.-28. apríl og koma ađ ţví loknu aftur á Gíg ţar sem gestir getiđ notiđ verkanna út sumariđ.

Verkefniđ Eldur, ís og mjúkur mosi fékk styrk úr barnamenningarsjóđi á síđasta ári. Í verkefninu vinna börn í nágrenni Vatnajökulsţjóđgarđs fjölbreytt verkefni tengd listsköpun, náttúruvernd og ţjóđgarđinum í allri sinni dýrđ. Grunnskólabörn umhverfis garđinn skipuleggja m.a.frćđslugöngur eđa viđburđi í gestastofum, setja upp sýningar og skipuleggja málţing til ađ velta upp spurningum eins og „Hvađ er náttúruvernd og hvernig getum viđ komiđ betur fram viđ náttúruna?“ Verkefniđ fellur vel ađ markmiđum ţjóđgarđsins um frćđslu til nćrsamfélags og skóla. Einnig styrkir ţađ listamenn í heimabyggđ og skapar umrćđur og viđburđi sem tengjast náttúruvernd.

Hér má sjá nokkrar myndir frá opnuninni.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744