Deildarmyrkvi á tungli að kveldi fyrsta vetrardags

Í kvöld mátti sjá deildarmyrkva á tungli en myrkvinn var lítill en þegar mest lét huldi skuggi jarðar aðeins 6% af tunglskífunni.

Deildarmyrkvi á tungli kl. 20:13 í kvöld.
Deildarmyrkvi á tungli kl. 20:13 í kvöld.

Í kvöld mátti sjá deildarmyrkva á tungli en myrkvinn var lítill en þegar mest lét huldi skuggi jarðar aðeins 6% af tungl-skífunni.

Tunglið leit þá út eins og tekinn hafi verið örlítill biti úr neðri hluta þess.

Á Stjörnufræðivefnum segir:

Deildarmyrkvinn hefst kl. 19:35. Þá sést hvernig syðsti hluti tunglsins byrjar að skyggjast. Myrkvinn nær hámarki fjörutíu mínútum síðar eða klukkan 20:14 þegar 6% af tunglskífunni er myrkvuð. Deildarmyrkvinn er svo yfirstaðinn klukkan 20:53. Þá skín fullt tunglið skært á himni.

 

Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson

Tunglið kl. 20:12

Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson

Tunglið kl. 20:13

Ljósmynd Hafþór

Tunglið kl. 20:18

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744