Býður upp málverk til styrktar Velferðarsjóði Þingeyinga

Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn á að styrkja Velferðarsjóð Þingeyinga segir Anna Soffía Halldórsdóttir sem efnt hefur til uppboðs á málverki eftir

Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn á að styrkja Velferðarsjóð Þingeyinga segir Anna Soffía Halldórsdóttir sem efnt hefur til uppboðs á málverki eftir hana.

"Sjóðurinn á undir höggi að sækja til að aðstoða þá sem þess þurfa. Fólkið okkar sem er að berjast jafnvel í bökkum til að ná endum saman. Hjálpum, því að það gefur okkur svo mikið, yl í hjartað. Þetta verk 80x60 er til sölu og fer hver einasta króna til Velferðarsjóðs.

80 þúsund er sett á verkið en auðvitað má bjóða hærra. Hægt að hafa samband við mig í einkaskilaboði" Skrifar Anna Soffía á Fésbókarsíðu sinni og koma nú.

Aðsend


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744