Borgarhólsskóli sigraði Stóru upplestrarkeppnina

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í gær í Þórsveri á Þórshöfn.

Tinna Marlis, Daníel Snær og Karen Linda.
Tinna Marlis, Daníel Snær og Karen Linda.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í gær í Þórsveri á Þórshöfn.

Níu nemendur úr sjöunda bekk komu saman af skólasvæðinu komu fram og flutti mál sitt fyrir gesti.

Í fyrstu umferð voru lesnar svipmyndir úr skáldsögunni Ógn eftir Hrund Hlöðversdóttur Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Þórarinn frá Steintúni En í þriðju og síðustu umferð fengu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja.

Í fyrsta sæti var Daníel Snær Lund úr Borgarhólsskóla, í öðru sæti var Karen Linda Sigmarsdóttir úr Borgarhólsskóla og þriðja sæti skipaði Tinna Marlis Gunnarsdóttir frá Grunnskólanum á Þórshöfn.

Lesarar úr Borgarhólsskóla auk Daníels Snæs og Karenar Lindu voru þær Bryndís Vala Þorkelsdóttir og Sveinn Jörundur Björnsson fulltrúar skólans og voru þau öll skólanum til mikils sóma.

Áður höfðu samtökin Raddir veg og vanda að skipulagningu keppninnar en þau hafa nú sleppt haldinu og munu skólarnir og sveitarfélögin á svæðinu skipuleggja keppnina. Ætlunin er að keppnin fari árlega á milli skóla og skál keppninnar taki mið af því. (borgarholsskoli.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744