Borgarhólsskóli fær styrki til kaupa á tæknilegoi

Borgarhólsskóli fékk fyrr á þessu skólaári veglegan styrk frá Landsvirkjun til að fjárfesta í tæknilegoi.

Tæknilegoið er valgrein á unglingastigi.
Tæknilegoið er valgrein á unglingastigi.

Borgarhólsskóli fékk fyrr á þessu skólaári veglegan styrk frá Landsvirkjun til að fjárfesta í tæknilegoi.

Á heimasíðu skólans segir að nemendum unglingastigs hafi boðist sú valgrein og vilji skólans sé að sem flestir nemendur geti notið hennar.

Lögð er áhersla á eðlis- og verkfræðifræði þar sem unnið er með vélar, hleðslu, endurnýtanlega orku o.fl.

Nýverið fékk skólinn styrk frá verkfræðistofunni Eflu til að stækka þetta verkefni. Nú býðst fleiri nemendum að spreyta sig í legosmíði og vonir standa til að þetta verkefni eflist áfram. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744