04. des
Bjarni Jón, Kristján Davíð og Magnús Máni héraðsmeistarar í skákÍþróttir - - Lestrar 357
Héraðsmót HSÞ í skák í flokki 16 ára og yngri var haldið í Litlulaugaskóla í Reykjadal í dag.
Bjarni Jón Kristjánsson vann fimm af sex skákum og stóð uppi sem sigurvegari á mótinu og er því héraðsmeistari HSÞ í skák í flokki 13-16 ára (8-10 bekkur).
Kristján Davíð Björnsson varð héraðsmeistari í flokki 9-12 ára (4-7 bekkur) með fjóra vinninga af 6 mögulegum og Magnús Máni Sigurgeirsson varð héraðsmeistari í flokki 8 ára og yngri (1-3 bekkur) með 3 vinninga af sex mögulegum.
Tefldar voru 6 umferðir eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 10 mín.
Nánari úrslit og lokastöðuna má lesa hér