21. nóv
Bingó til styrktar Söndru LindFréttatilkynning - - Lestrar 680
Bingó verður haldið í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn sunnudaginn 25. nóvember kl. 14.00.
Fjöldi góðra og gagnlegra vinninga.
Spjaldið kostar kr. 1000.- Enginn posi á staðnum.
Allur ágóði rennur til fjölskyldu Söndru Lind Birgisdóttur, en Sandra Lind er sex mánaða gömul og berst við mjög sjaldgæfan beinasjúkdóm.
Kaffiveitingar í boði Freyju og annarra kvenna.
Verið öll velkomin og leggjum góðu málefni lið !
Þeir sem hafa áhuga á að gefa vinninga á bingóið mega gjarnan hafa samband við Sigrúnu í síma 894-1279
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur.
Margt smátt gerir eitt stórt.
0130-05-020001 kt 030518-2250
Raufarhafnarkirkja