14. okt
Bendi á sópnum í kaupfélagshúsinuAlmennt - - Lestrar 411
Nýir vendir sópa best segir máltækið en ekki var vöndurinn nýr að sjá sem Benedikt Kristjánsson mundaði í Kaupfélagshúsinu í gær. Aftur á móti vildu starfsmenn hans hjá Trésmiðjunni Val meina það að sóparinn væri nýr.
Hann hefði einugis gripið til sópsins þegar hann sá til ljósmyndara 640.is sniglast í kringum þá þar sem þeir voru að enda við að fjarlægja teppi í stigunum á milli hæða.
Að sjálfsögðu var Bendi ekki sammála þessu en vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Fúsi glotti bara að þessu.