Sauðfjárslátrun lokið á Húsavík

Sauðfjárslátrun lauk í dag hjá Norðlenska á Húsavík.

Sauðfjárslátrun lokið á Húsavík
Almennt - - Lestrar 413

Falleg lömb í sauðfjárrétt Norðlenska.
Falleg lömb í sauðfjárrétt Norðlenska.

Sauðfjárslátrun lauk í dag hjá Norðlenska á Húsavík.

Alls var 95.512 kindum slátrað í ár sem er það mesta sem slátrað hefur verið í sögu sláturhússins og er 4.175 kindum meira en fyrra met, sem sett var í fyrra.

641.is greinir frá en þar má sjá fleiri myndir.

87.210 dilkum var slátrað og var meðalþyngdin 16,43 kg sem er 0,48 kg lægra en árið 2016. Slátrun á fullorðnu fé var nokkuð meiri en í fyrra en 8.302 fullorðnum kindum var slátrað í ár sem er 1.583 kindum meira en í fyrra.

„Ég vil þakka bændum, starfsfólki, tengiliðum okkar í sveitum og þeim verktökum sem hafa komið að þessu með okkur fyrir gott samtarf og í mínum huga gengur svona verkefni eins og sláturtíð aldrei nema samstarfið sé gott í allar áttir“, sagði Sigmundur Hreiðarsson stöðvarstjóri Norðlenska á Húsavík í spjalli við 641.is í dag. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744