Áslaug Munda valin í U-17 landsliðið - Snæþór aftur í Völsungsbúninginn

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur verið valin í U-17 ára landslið Íslands í knattspyrnu.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur verið valin í U-17 ára landslið Íslands í knattspyrnu. 

Liðið tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Edinborg dagana 19.-25. febrúar næst komandi.

Á heimasíðu Völsungs er Áslaugu Mundu óskað til hamingju með þennan magnaða árangur sem og góðs gengis í mótinu. 640.is tekur undir það.

Hér má sjá frétt KSÍ um ferðina.

Áslaug Munda

Áslaug Munda í leik með Völsungi. ljósm. volsungur.is

Þetta er ekki eina fréttin úr herbúðum Vöslungs í dag því Snæþór Haukur Sveinbjörnsson skrifaði undir samning við félagið um helgina.

Snæþór sem er markmaður spilaði síðast með Völsungi 2015 og hefur spilaði 47 leiki fyrir félagið á árunum 2011-2015. Síðast var Snæþór á mála hjá Hvíta riddaranum en spilaði einnig leiki með Geisla síðasta sumar.

Júlíus og Snæþór handsala samninginn

Júlíus Bessason og Snæþór við undirskrift samningsins.

Ljósm. volsungur.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744