Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heldur ársfund fimmtudaginn 9. apríl nk. Ársfundurinn verđur í sal Hvalasafnins á Húsavík og stendur frá kl. 13:00

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Fréttatilkynning - - Lestrar 324

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heldur ársfund fimmtudaginn 9. apríl nk. Ársfundurinn verđur í sal Hvalasafnins á Húsavík og stendur frá kl. 13:00 til 17:00. 

Í fréttatilkynningu kemur fram ađ Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráđherra setji ársfundinn og ávörp flytja Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Kristján Ţór Magnússon, bćjarstjóri Norđurţings.
 

Á vegum rannsóknasetranna eru stundađar fjölbreyttar rannsóknir. Međal viđfangsefna eru lífríki hafsins, umhverfi og landnýting, fiskar og fuglar, auđlindir, ferđamál, bókmenntir, sagnfrćđi og fornleifafrćđi. Allt eru ţetta rannsóknasviđ sem mikill áhugi er á um allt land og gefa tilefni til samstarfs milli setranna viđ Háskóla Íslands í Reykjavík, sem og ađrar rannsóknastofnanir hérlendis og erlendis.

Á ársfundinum verđa kynnt nokkur verkefni sem unniđ er ađ viđ rannsóknasetrin. Marianne Rasmussen, forstöđumađur rannsóknaseturs HÍ á Húsavík, segir frá rannsóknum á hvölum á Skjálfandaflóa sem hún hefur stýrt undanfarin ár. Ţrír meistara- og doktorsnemar kynna rannsóknaverkefni sem unnin eru viđ rannsóknasetrin. Johannes Welling doktorsnemi viđ Rannsóknasetur HÍ á Hornafirđi kynnir rannsókn sína á áhrifum loftslagsbreytinga af mannavöldum á ferđamennsku á jöklasvćđum; Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir meistaranemi viđ Rannsóknasetur HÍ á Húsavík segir frá rannsókn á ţróun og stöđu ferđaţjónustunnar á Húsavík og Soffía Karen Magnúsdóttir fjallar um tilraunaeldi á evrópska humrinum en hún er meistaranemi viđ Rannsóknasetur HÍ á Suđurnesjum.

Héđinn Unnsteinsson stefnumótunarsérfrćđingur í forsćtisráđuneytinu og Óli Halldórsson forstöđumađur Ţekkingarnets Ţingeyinga fjalla um ýmsa ţćtti rannsóknastarfs á landsbyggđinni. Loks kynnir Sćunn Stefánsdóttir forstöđumađur Stofnunar rannsóknasetra stefnu stofnunarinnar 2015-2017 sem unniđ hefur veriđ ađ undanfariđ.

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands starfrćkir rannsóknasetur á Hornafirđi, Suđurlandi, Suđurnesjum, Snćfellsnesi, Vestfjörđum, Norđurlandi vestra og Norđausturlandi. Stofnunin er einnig međ starfsemi á Austurlandi en ţar er akademískur sérfrćđingur nýkominn til starfa.

Nánar hér

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744