Árbraut - Ný plata frá Hjalta og Láru

Í síðustu viku sendu Hjalti og Lára frá sér nýja plötu sem nefnist Árbraut.

Árbraut - Ný plata frá Hjalta og Láru
Fréttatilkynning - - Lestrar 593

Hjalti og Lára. Ljósmynd Daníel Starrason.
Hjalti og Lára. Ljósmynd Daníel Starrason.

Í síðustu viku sendu Hjalti og Lára frá sér nýja plötu sem nefnist Árbraut.

Nafnið Árbraut vísar í æsku-stöðvar Hjalta á Blönduósi, en hann er alinn upp við götuna Árbraut og reyndar býr stærsti hluti fjölskyldu hans enn við götuna. Árbraut er líka tákn fyrir eitthvað sem er stöðugt en síbreytilegt.

Árbraut er að mörgu leiti ólík fyrri plötu Hjalta og Láru, en á þeirri plötu fluttu þau að mestu lög og texta annarra. Á Árbraut er að finna 10 ný lög sem Lára og Hjalti hafa samið og útsett í sameiningu og í samstarfi við Stefán Örn Gunnlaugsson upptökustjóra plötunnar. Þau flytja einnig Vornæturljóð Elísubetar Geirmundsdóttur og Hildur Eir Bolladóttir samdi texta við eitt laganna.

Tónlistin er þjóðlagaskotið ballöðu popp með sinfónískum blæ á köflum.

Á plötunni spila, ásamt Hjalta og Láru, Stefán Örn Gunnlaugsson, píanó, Ásdís Arnardóttir, selló, Ella Vala Ármannsdóttir, horn, Petrea Óskarsdóttir, þverflauta, Valgarður Óli Ómarsson, slagverk og Stefán Gunnarsson, bassi. Upptökur fóru fram á Akureyri í júní og var útgáfan að hluta til fjármögnuð á Karolinafund.com.

Útgáfu Árbrautar verður fagnað með tónleikum í Sjóminjasafni Safnahússins á Húsavík föstudaginn 2. september kl. 20.30.

Í september og október munu Hjalti og Lára ferðast víðsvegar um landið og halda tónleika.

Lára Sóley Jóhannsdóttir, sem syngur og leikur á fiðlu, var kjörinn Bæjarlistamaður Akureyrir 2015-2016. Hún er konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og kemur reglulega fram með ýmsum tónlistarhópum á Íslandi og í Bretlandi.

Hjalti Jónsson, sem syngur og leikur á gítar, starfar sem tónlistarmaður á Akureyri, en er einnig sálfræðingur.

Lára og Hjalti

Hjalti og Lára. Ljósmynd Daníel Starrason.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744