18. sep
Áki Sölvason markakóngur 2. deildarÍþróttir - - Lestrar 160
Áki Sölvason leikmaður Völsungs skoraði sitt sautjánda mark í sumar þegar lokaumferð annarrar deildar fór fram gær.
Það gerði hann í tapleik gegn Magna á Grenivík sem fór 2-1.
Áki tryggði sér þar með markakóngstitilinn í 2. deild þetta árið.
Julio Cesar Fernandes KF og Omar Diouch Njarðvík skoruðu 16 mörk hvor og urðu í öðru og þriðja sæti.
Völsungur endaði í fjórða sæti 2. deildar með 33 stig. Njarðvík sigraði deildina með 55 stig, Þróttur R varð í öðru sæti með 49 stig og Ægir í þriðja með 37 stig.