Æskulýðsstarf Þjálfa

Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur í  æskulýðsstarfi hestamannafélagsins  ÞJÁLFA. -   *Laugardagskvöldið  30. janúar: Einn þekktasti knapi

Æskulýðsstarf Þjálfa
Aðsent efni - - Lestrar 324

Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur í  æskulýðsstarfi hestamannafélagsins  ÞJÁLFA. -

 

*Laugardagskvöldið  30. janúar: Einn þekktasti knapi landsins:*

Laugardagskvöldið 30. janúar n.k. verður *Mette Manseth* með fyrirlestur og

sýnikennslu í reiðhöllinni Torfunesi kl. 19:00 – 20:00.

*Allir áhugasamir eru velkomnir, *þátttökugjald aðeins 1000 kr.  Komum saman

og höfum gagn og gaman af.

Mette kemur til með  að halda fleiri fyrirlestra og/eða sýnikennsluí Torfunesi í vetur,

ef viðtökur verða góðar.

 

*Sunnudaginn 31. janúar:  “Baldvin býður heim*”

 

 

Baldvin býður í reiðhöllina í Torfunesi frá kl. 13:00 – 16:00. 

Allirhestaáhugamenn eru hvattir til að mæta, með fjölskylduna

og kynnast þessari frábæru aðstöðu, notkunarmöguleikunum og starfsseminni

sem þar fer fram.  Æskulýðsfélagið mun einnigkynna fyrirhugað starf félagsins;

námsskeið, opna daga, hesthúsheimsókniro.fl.. Við þyggjum góðar ábendingar og hugmyndir

um félagsstarfið  frá sem flestum. Eigum góðan eftirmiðdag saman íreiðhöllinni í Torfunesi, öllum að kostnaðarlausu.  Kaffi, kakó og”með-ðíí”...

 

*13. og 14. febrúar: - Reiðnámsskeið: *

Helgina 13. og 14. febrúar verður hún Anna Rebecka með reiðnámsskeið íTorfunesi.

Æskulýðsfélag Þjálfa mun greiða niðurkostnaðinn að  hluta, fyrir félagsmenn,

en námsskeiðið er ætlaðbörnum/unglingum eldri en 12 ára þ.e.a.s. fyrir þau sem

 eru lengra komin, -námsskeið  fyrir yngri félaga, auglýst síðar, (hafið samband við gjaldkera

æskulýðsfélagsins vegna upphæðar niðurgreiðslunnar s. 4643707)

 

 

Nánari upplýsingar um námsskeiðið og skráning á netfangið

*brynth@isholf.is*<brynth@isholf.is>(s. 8632922)

 

 

Skráið  ykkur strax, - fyrstur kemur, - fyrstur fær....!!!

 

 

*Laugardagur 20. febrúar: - Reiðhallardagur:*

Takið  daginn frá !!! Æskulýðsstarf Þjálfa skipuleggur fyrir félagsmenn”opinn dag

 í reiðhöllinni Torfunesi, kl. 10:00 – 16:00

Mætum með  börnunum og leyfum þeim að kynnast hestamennskunni enn betur.

Við leiðbeinum og aðstoðumhvort annað.  Komið endilega líka með hestinn ykkar

og nýtið reiðhöllina ámeðan á heimsókninni stendur.

(látið  Baldvin bara vita ef hross verður meðferðis,  svo hægt sé að hafa

pláss í stíum yfir daginn.)

 

 

Gunnar Óli/Viðbót og Bryndís/Gistiþjónustan Staðarhóli bjóða uppá

kraftmikla kjötsúpu í hádeginu .....

Nánari starfssemi æskulýðsfélagsins auglýst síðar.  En fylgist líka endilega

með á ”Facebook” síðunni”Æskulýðsstarf Þjálfa” – og gerist vinir.

Þar verða uppfærðar upplýsingarreglulega.

*Athugið: * Það eru engin félagsgjöld í Þjálfa fyrir börn 15 ára og yngri,

svo endilega skráið ykkur í Þjálfa,ef þið  hafið áhuga, því þannig eruð 

þið sjálfkrafa í æskulýðsfélaginu.

 

 Stjórnin

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744