07. jún
Adam blessaðurAlmennt - - Lestrar 437
Að lokinni hátíðardagskrá Sjómannadagsins í gær blessaði Séra Þorgrímur Daníelsson nýjan slöngubát Björgunarsveitarinnar Garðars.
Báturinn var keyptur fyrir fé sem Adam Jónsson frá Tóvegg í Kelduhverfi ánafnaði björgnarsveitinni úr dánarbúi sínu.
Báturinn, sem var keyptur notaður og er af gerðinni Zodiak Pro, ber nafn Adams heitins.
Með því að' smella ámyndirnar er hægtað fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Adam á vaktinni í gær.
Séra Þorgrímur blessar hér bátinn að viðstöddum félögum úr björgunarsveitinni.
Séra Þorgrímur ásamt björgunarsveitarfólki við Adam að lokinni blessun.
Adam Jónsson frá Tóvegg. f. 1921 - d. 2014.