Á móti straumnum: Róið í kringum Ísland 2019Fréttatilkynning - - Lestrar 309
Veiga Grétarsdóttir kajakræðari kemur til Húsavíkur föstudaginn 2. ágúst og verður með fyrirlestur í Hvalasafninu um á kvöldið kl 20:00.
Ókeypis er inn á fyrirlesturinn og allir eru velkomnir.
Í fréttatilkynning frá Píeta samtökunum segir að Veiga hafi í sumar róið hringinn í kringum Ísland á sjókajak, en róðurinn hófst á Ísafirði þann 14. maí síðastliðinn. Hún rær rangsælis í kringum landið, gegn straumnum sem liggur við landið, en verkefnið nefnist einmitt „Á móti straumnum“ sem er einnig táknrænt fyrir Veigu þar sem hún hefur sjálf siglt gegn straumnum alla ævi. Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er í slíkan leiðangur, en enginn hefur róið rangsælis um landið áður svo vitað sé.
Veiga fæddist í líkama karlmanns og gekk í gegnum kynleiðréttingarferli sem hófst fyrir rúmum 5 árum. Hún glímdi við mikla vanlíðan og sjálfsvígshugsanir fyrir og á meðan ferlinu stóð en stendur uppi í dag hamingjusamari en nokkru sinni áður.
Í fyrirlestrinum segir Veiga frá lífi sínu sem kona í líkama karlmanns, kynleiðréttingarferlinu, baráttunni við sjálfsvígshugsanir, vanlíðan og hvernig lífið hennar breyttist eftir að hún lauk ferlinu.
Veiga er nú komin á Norðurland eftir að hafa róið í 10 vikur og mun hún halda fyrirlestra á Húsavík og á Siglufirði áður en hún heldur för sinni áfram til Ísafjarðar þar sem hún áætlar að hún muni ljúka hringnum um miðjan ágúst.
Með þessu verkefni er Veiga að safna áheitum fyrir Píeta samtökin sem sinna fólki sem glíma við sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaða og aðstandendur.
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og hlusta á þessu mögnuðu konu.
Hægt er að fylgjast með Veigu á www.veiga.is
Nánar um Píeta samtökin á www.pieta.is