12 manns gefa kost á sér í forvali VG um fimm efstu sætin í Norðaustur­kjördæmi

Tólf manns gefa kost á sér í for­vali um fimm efstu sætin í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir Vinstri græna.

Tólf manns gefa kost á sér í for­vali um fimm efstu sætin í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir Vinstri græna.  

For­valið er raf­rænt og verður haldið 13. til 15. febr­úar næst­kom­andi.

Á fundi kjörstjórnar með frambjóðendum í gærkveldi var ákveðið að halda þrjá málefna-fundi með þeim sem eru í framboði.

Fundirnir verða allir fjarfundir á zoom.

Þau 12 sem bjóða sig fram á lista VG í forvalinu eru: 

  • Angantýr Ásgeirsson, sálfræðinemi, Akureyri. 
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir, nemi, Akureyri. 
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Alþingismaður, Ólafsfirði, 1. sæti. 
  • Cecil Haraldsson, fyrrverandi sóknarprestur, Seyðisfirði, 4.-5. sæti. 
  • Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri. 
  • Helga Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi, Eyjafjarðarsveit. 
  • Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupsstað. 1 – 2 sæti. 
  • Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri, 3. sæti. 
  • Jódís Skúladóttir, lögfræðingur, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Múlaþingi 2. sæti. 
  • Kári Gautason, framkvæmdastjóri í fæðingarorlofi, Reykjavík,  2. sæti. 
  • Óli Halldórsson, forstöðumaður, Húsavík, 1. sæti . 
  • Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson, bóndi, Þingeyjarsveit. 

Ljósmynd - Aðsend


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744