14. maí
Viðræðum miðar áframAlmennt - - Lestrar 264
Fulltrúar frá Framsýn og Þingiðn funduðu með talsmönnum Samtaka atvinnulífsins og PCC í gær um sérkjarasamning aðila fyrir starfsemi PCC á Bakka.
Samningurinn rann út um síðustu áramót, frá þeim tíma hafa samningsaðilar hist reglulega til ræða kröfur stéttarfélaganna um breytingar á núverandi samningi.
Á heimasíðu Framsýnar segir að viðræðurnar hafi þokast áfram í gær og verður fundarhöldum haldið áfram á næstu dögum.
Stéttarfélögin hafa lagt mikla áherslu á að klára viðræðurnar í maí, ef ekki þurfi félögin að fara að huga að frekari aðgerðum til að knýja á um gerð sérkjarasamnings milli aðila.