Ljúfsár kvöl í 400 ár - þrjár kynslóðir tónskálda

Föstudaginn 17. maí kl. 20:00 kemur upprunaflutningshópurinn Ensemble Elegos fram í Skútustaðakirkju og býður áheyrendum að hverfa aftur í tímann um 400

Ljúfsár kvöl í 400 ár - þrjár kynslóðir tónskálda
Fréttatilkynning - - Lestrar 66

Föstudaginn 17. maí kl. 20:00 kemur upprunaflutningshópurinn Ensemble Elegos fram í Skútustaðakirkju og býður áheyrendum að hverfa aftur í tímann um 400 ár.

Að þessu sinni er efnisskráin helguð þremur ítölskum tónskáldum 17. aldarinnar, þeim Claudio Monteverdi, Francesco Cavalli og Barböru Strozzi.

Í blábyrjun 17. aldar urðu verk Monteverdis uppspretta ritdeilna vegna djarfrar notkunar á ómstríðum tónum. Einn nemenda Monteverdis var óperutónskáldið Francesco Cavalli, sem naut mikilla vinsælda í Feneyjum um miðja 17. öld, en sum verka hans voru einnig flutt í París á æskuárum Lúðvíks fjórtánda.

Cavalli kenndi svo feneysku söngkonunni Barböru Strozzi, sem hóf feril sinn 16 ára gömul á stofutónleikum í húsi fósturföður síns og tók síðar virkan þátt í fundum menntamannahópsins sem hann stofnaði, Accademia degli Unisoni.

Á tónleikunum hljóma verk eftir þessi þrjú tónskáld og við leitumst við að rannsaka hvernig tónlistarstefna berst frá kennara til nemanda en breytist einnig með hverju nýju tónskáldi.

Ensemble Elegos skipa ítalski tenórinn Enrico Busia, barokkhörpuleikarinn Sólveig Thoroddsen og teorbu- og barokkgítarleikarinn Sergio Coto Blanco.

Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744