19. júl
Undirskriftasöfnun um bætta verslunarhætti á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 1519
Í morgun hófst á Húsavík og nágrannasveitum undirskriftasöfnun um bætta verslunarhætti á Húsavík.
Í tilkynningu segir að undirskriftalistar liggji nú frammi í verslunum og á vinnustöðum þar sem skorað er á íbúa að taka þátt.
Áskorunin hljómar þannig:
Við undirrituð, íbúar á Húsavík og nágrenni, skorum á forsvarsmenn Bónus og Krónunnar að opna verslun í bænum. Við búum nú við samkeppnislausan matvörumarkað og því mikil þörf fyrir nýjan aðila inn á svæðið sem hefur metnað og burði til að veita góða og faglega þjónustu.