03. apr
Tvö ný smit staðfest í NorðurþingiAlmennt - - Lestrar 540
Í morgun voru tvö ný smit staðfest í Norðurþingi og hafa þá verið greind þrjú lögheimilistengd smit í sveitarfélaginu.
Viðkomandi einstaklingar eru í einangrun og mál þeirra tveggja í góðum höndum rakningarteymisins.
Þetta kemur fram í pilstli Kristjáns Þórs Magnússonar sveitarstjóra Norðurþings en hann má lesa hér
Á Norðurlandi eystra hafa alls greinst 35 smit og flest á Akureyri eða 26 talsins. Heildarfjöldi smita á Íslandi er kominn í 1364.