Tók aðeins 15 mínútur að finna fyrsta hval ársinsAlmennt - - Lestrar 336
Fyrsta hvalaskoðunarferð ársins á Skjálfanda var farin í gær þegar Bjössi Sör hélt út á flóann með tuttugu farþega um borð.
Í tilkynningu frá Norðursiglingu segir að það hafi verið blíðskapar-veður og falleg vetrarstilla á Húsavík og aðstæður hinar bestu til siglinga.
"Skemmst er frá því að segja að það voru eingöngu liðnar 15 mínútur af ferðinni þegar að áhöfnin kom auga á fyrsta hval vertíðarinnar! Þar var á ferðinni hinn hressasti hnúfubakur sem heldur betur gladdi farþega og áhöfn með nærveru sinni.
Hvalaskoðunarvertíðin á Húsavík hefst formlega þann 1. mars næstkomandi. Norðursigling tók forskot á sæluna í gær, en fyrirtækið siglir nokkrar sérferðir nú í febrúar.
Það er óhætt að segja að þessi fyrsta ferð sé aldeilis frábær byrjun á afmælisári Norðursiglingar en í sumar verða 25 ár liðin síðan fyrirtækið hóf hvalaskoðun á Skjálfanda" segir í tilkynningunni.
Bjössi Sör siglir út á Skjálfandann í fallegu vetrarveðri.
Ljósmynd Arngrímur Arnarson.
Það tók stuttan tíma að finna fyrsta hvalinn, eða aðeins 15 mínútur.
Ljósmynd Frédéric Gendron.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.