Stelpurnar sigruðu á ÁlftanesiÍþróttir - - Lestrar 521
Völsungur gerði góða ferð á Álftanesið í gær þegar stelpurnar lögðu heimastúlkur að velli í 2. deild kvenna.
Þetta var fyrsti leikurinn í deildinni þetta árið og um hörkuleik að ræða þar sem báðum liðum er spáð sæti ofarlega í deildinni. Álftanesi 2. sæti og Völsungum því fjórða.
Hulda Ösp Ágústsdóttir kom Völsungum á bragðið á 24. mínútu leiksins og tíu mínútum síðar hafði Marta Lovísa Sigmarsdóttir tvöfaldað forystuna.
Oddný Sigurbergsdóttir minnkaði muninn fyrir heimastúlkur skömmu síðar. En á markamínútunni, þeirri 43, skoraði Harpa Ásgeirsdóttir fyrirliði Völsungs og staðan því 3-1 þegar gengið var til hálfleiks á Bessastaðavelli.
Eftir 18 mínútna leik í síðari hálfleik skoraði Harpa sitt annað mark og skömmu síðar minnkuðu Álftanesstúlkur muninn í 2-4. Þar var að verki Aþena Þöll Gunnarsdóttir.
Og þar við sat þangað til að á sjöttu mínútu uppbótartímans þegar Saga Kjærbech Finnbogadóttir minnkaði muninn í 3-4 og þannig lauk leiknum.
Frábær sigur hjá Völsungum í miklum markaleik.
Smelltu hér til að sjá spána fyrir 2. deild kvenna í heild sinni.