10. okt
Sparisjóður Suður-Þingeyinga lækkar útlánavexti um 30 vaxtapunktaAlmennt - - Lestrar 119
Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti sína 28. ágúst sl. um 25 vaxtapunkta (0,25 prósentustig).
Í framhaldi af því gerðu bankar og sparisjóðir breytingar á vaxtakjörum til samræmis við breytingar stýrivaxta, þó að teknu tilliti til breyttra markaðsaðstæðna.
Í tilkynningu frá Sparisjóði Suður-Þingeyinga segir að sú breyting hafi verið gerð hjá sparisjóðunum 21. september s.l.,sbr. eftirfarandi töflu.
Vextir hafa verið að lækka á árinu og í tilkynningunni segir að Sparisjóðurinn voni að þessar viðbótarlækkanir komi sér vel fyrir viðskiptavini og treysti enn frekar viðskiptasambandið.