25. mar
Skrifstofa stéttarfélaganna lokar fyrir heimsóknirAlmennt - - Lestrar 140
Vegna Covid-19 faraldursins hafa stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum ákveðið að takmarka aðgengi félagsmanna að starfsmönnum skrifstofunnar með því að loka fyrir heimsóknir á skrifstofuna um óákveðin tíma.
Þetta er gert með velferð félagsmanna að leiðarljósi en stéttarfélögin munu halda úti þjónustu eins og kostur er í gegnum síma og með rafrænum hætti.