05. jan
Sigur hjá stelpunum í blakinuÍþróttir - - Lestrar 283
Völsungur lék við Þrótt Reykjavík-B í Benectadeildinni í blaki kvenna í höllinni í gær.
Völsungsstúlkur áttu frábæran leik og sigruðu örugglega 3-0. Stiga-hæstar voru Arna Védís með 16 stig, Heiðdís Edda með 7 stig og Alexandra með 7 stig.
Uppspilarinn ungi Kristey Hallsdóttir átti líka frábæran leik og skoraði 5 stig ásamt því að mata samherja sína á fyrsta flokks uppspili sem skilaði mörgum flottum skellum í gólfið hjá Þrótturum.
Völsungsliðið vex með hverjum leik og greinilegt að þjálfararnir Guðbergur Egill Eyjólfsson og Lúðvík Kristinsson eru á réttri leið með að byggja upp þetta unga og efnilega lið Völsungs.
Blaklið Völsungs ásamt þjálfurum sínum.