Sigur á Vestra í hörkuleikÍþróttir - - Lestrar 612
Völsungur tók á móti Vestra á Húsavíkurvelli í dag.
Nokkuð vindasamt var á Húsavík og örlaði á rigningardropum en menn hafa nú séð það verra.
Guðmundur Óli Steingrímsson kom Völsungi í 1-0 eftir rúmlega hálftíma leik með marki úr vítaspyrnu.
Þar við sat allt til á 82 mínútu þegar Vestramenn jöfnuðu og þar var að verki James Mack.
Svolítið högg að fá síg mark á þessum tímapunkti en Völsungar gáfust ekki upp. Lokamínúturnar voru æsispennandi og það dróg til tíðinda í uppbótartíma þegar Ásgeir Kristjánsson gerði sigurmarkið eftir að hafa sloppið einn í gegn og leikið á markmanninn.
Gríðarlega mikilvægur sigur og er Völsungur í 2.-4.sæti með 7 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Guðmundur Óli tekur vítið og boltinn í bláhornið.
James Mack skoraði mark Vestra og hér hleypur hann með boltann að miðju.
Ásgeir búinn að snúa af sér varnarmanninn og markvörðurinn eftir og skömmu síðar lá boltinn í netinu.
Og markinu fagnað gríðarlega enda afátt skemmtilegra í boltanum en að skora sigurmark í uppbótartíma.
Hér má sjá leikskýrslu en sex gul spjöld fóru á loft í leiknum hjá Steinari Gauta Þórarinssyni dómara