20. ágú
Síðasta skemmtiferðaskip sumarsinsAlmennt - - Lestrar 211
Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins kom í höfn á Húsavík í gær.
Þarna var á ferðinni glæsifleyið Le Boreal frá Polar Cruises og lagðist það við Bökugarðinn.
Skipið er eitt hið nýjasta og flottasta sem siglir um norður Atlantshaf, sjósett í maí 2010.
Það er nú að ljúka 15 daga ferðð sem hófst í Noregi þaða sem siglt var til austur Grænlands og Íslands.
Frá Húsavík sigldi það til Grundarfjarðar þar sem það er í dag og á morgun lýkur ferðinni í Reykjavík. Farþegarnir munu svo fljúga til síns heima.