17. okt
Rembrandt í höfn á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 422
Hollenska skonnortan Rebrandt van Rijn kom til Húsavíkur í kvöld eftir siglingur frá Grímsey.
Þetta þrímastra fley var byggt sem fiskiskip 1922 en siglir nú með ferðamenn á norðurslóðum og kom hingað til lands frá Grænlandi.
Því var breytt í skonnortu 1994 en það er nefnt eftir listmálaranum þekkta, Rembrandt Harmenszoon van Rijn, sem var upp á árunum 1606 til 1669.
Rembrandt van Rijn við bryggju á Húsavík.